Bako Ísberg, Verslunartækni & Geiri flytja saman í nýtt og glæsilegt húsnæði!
Um þessar mundir standa yfir flutningar hjá Bako Ísberg og Verslunartækni & Geira en fyrirtækin flytja saman í nýtt og stærra húsnæði að Draghálsi 18 sem er bilið við hliðina á núverandi vöruhúsi Verslunartæknis & Geira. Þetta þýðir að öll þjónusta verður sameinuð undir sama þaki.
Starfsfólk biður viðskiptavini sína afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda, en að sjálfsögðu eru öll mál leyst eftir bestu getu á núverandi staðsetningum. Stefnt er að því að sameinuð verslun verði opin að Draghálsi 18 á þriðjudaginn 21. maí kl. 08:00 (eftir annan í Hvítasunnu).
Starfsfólk Bako Ísberg, Verslunartækni & Geira hlakka til að taka vel á móti ykkur í nýju og glæsilegu húsnæði!
Hægt er að ná í starfsfólk á hefðbundnum opnunartíma í síma 595-6200 og í síma 535-1300
Fréttir